Fyrri umferð Pepsi deildarinnar er lokið og fara nú liðin að spila seinni leikinn gegn hvoru öðru. Grindavík mætir Stjörnunni á mánudag á Grindavíkurvelli. Fyrri leikurinn í vor byrjaði bæði og endaði illa og eiga því okkar menn harm að hefna.
Leikurinn hefst klukkan 19.15 og eru allir hvattir til að mæta.
Bagg er bögg
Höfundur Umsjónarmađur
miđvikudagur, 14 júlí 2010
KSÍ kynnti á blaðamannafundi í dag átaksverkefni sitt "Bagg er bögg" þar sem KSÍ ásamt Jafningafræðslunni og Lýðheilsustöð.
Átakinu er ætlað að sporna við aukinni munntóbaksnotkun hjá ungu fólki, þar sem áhersla er lögð á unga knattspyrnuiðkendur.
Þess má geta að það er yfirlýst stefna knattspyrnudeildarinnar að munntóbak er með öllu óheimil á íþróttasvæðinu.
Myndir frá Nikulásarmótinu
Höfundur Umsjónarmađur
miđvikudagur, 14 júlí 2010
Eins og fram kemur hér fyrir neðan þá tók 6.flokkur drengja þátt í Nikulásarmótinu um síðustu helgi. Það eru komnar inn myndir frá mótinu frá Sólný Pálsdóttir og kunnum við henni bestu þakkir fyrir það.
Hægt er að sjá myndirnar hennar Sólnýju hér. Þau sem eiga fleiri myndir frá Nikulásarmótinu eða öðrum mótum sumarsins og vilja koma þeim á framfæri geta sent þær á
Unglingalandsmót
Höfundur Umsjónarmađur
miđvikudagur, 14 júlí 2010
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Borganesi 29.júlí til 1.ágúst næstkomandi. Skráning er hafin og verður opin til 23. júlí og er hægt að skrá sig hér
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Már Svavarsson, formaður UMFG, í netfanginu
Ţór/KA - Grindavík í kvöld
Höfundur Umsjónarmađur
miđvikudagur, 14 júlí 2010
Meistaraflokkur kvenna fer norður í land í kvöld þar sem þær mæta sameiginlegu liði Akureyrar, Þór/KA, í lokaleik 10. umferðar Pepsi deildar kvenna.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Þórsvelli ef einhver skildi vera á ferðalagi þarna. Liðin gerðu 2-2 jafntefli í upphafsleik Íslandsmótsins 13. maí en eitthvað hefur dregist á milli liðana síðan þá. Þór/KA er það lið sem helst getur veitt Valsstúlkum baráttu um titilinn og hafa 4 leikmenn sem eru á top 10 yfir markahæstu konur Íslandsmótsins.
6.flokkur A sigrađi á Nikulásarmótinu
Höfundur Umsjónarmađur
miđvikudagur, 14 júlí 2010
Yngri flokkar Grindavíkur í knattspyrnu eru á ferð og flugi um allt land í sumar. Fjölmenn sveit í 6. flokki Grindavíkur fór norður til Ólafsfjarðar og tók þátt í Nikulásarmótinu um síðustu helgi. Óhætt er að segja að Grindavíkurstrákarnir hafi verið heimabyggð sinni til sóma því þeir stóðu sig frábærlega vel og unnu flokk A liða.
Hitinn hefði reyndar mátt vera meiri fyrir norðan en það kom ekki í veg fyrir snilldartaka okkar manna. Þeir unnu keppni A liða nokkuð örugglega en Þór varð í 2. sæti og Fjarðabyggð í því þriðja. B og C lið stóðu sig einnig með sóma þótt þau hafi ekki komist á verðlaunapall að þessu sinni.
Nýr leikmađur: Emma Mary Higgins
Höfundur Umsjónarmađur
ţriđjudagur, 13 júlí 2010
Meistarflokkur kvenna hefur fengið til sín nýjan markmann og jafnframt þriðja landsliðskonuna frá Norður-Írlandi. Helen Alderson sem staðið hefur í markinu í sumar í fjarveru Ásu Daggar er samningsbundin Sunderland og er að hefja undirbúningstímabilið þar.
Emma Mary Higgins kemur í hennar stað en Emma er Norður Íri og hittir félaga sína úr Norður-Írska landsliðinu þær Sarah McFadden og Rachel Furness.
Næsti leikur Grindavíkur er gegn Þór/KA á morgun á Akureyri sem verður jafnframt síðasti leikur Helen Alderson með liðinu í sumar.
8 liđa úrslit hjá 2.flokki
Höfundur Umsjónarmađur
föstudagur, 09 júlí 2010
Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðví í 2. flokki karla mætir FH í 8 liða úrslitum VISA bikarsins ár morgun. Leikurinn fer fram á aðalvellinum í Grindavík klukkan 14:00
Grindavík/Njarðvík er í fjórða sæti B deildar eftir 8 leiki en FH í efsta sæti A deildar þannig að þetta eru verðugir andstæðingar.
VISA bikar í kvöld
Höfundur Umsjónarmađur
föstudagur, 09 júlí 2010
Grindavík mætir Stjörnunni í Garðabæ í kvöld í VISA bikarkepni kvenna. Er leikurinn liður í 8 liða úrslitum sem Grindavík komst í með sigri á Tindastól/Neista í 16 liða úrslitum.
Stjarnan og Grindavík mættust í 2.umferð Íslandsmótsins fyrr í sumar á gervigrasinu og fóru garðbæingar þar með sigur, 1-0
Grindavík 1- Selfoss 1
Höfundur Umsjónarmađur
fimmtudagur, 08 júlí 2010
Rétt í þessu lauk leik Grindavíkur og Selfoss í 11. umferð Pepsi deild karla. Liðin skiptu með sér stiginu í botnslagnum og mega það teljast sanngjörn úrslit þar sem Grindavík átti fyrri hálfleik og Selfoss betri í þeim seinni.
Grindavík fékk næg tækifæri í fyrri hálfleik til að gera út um leikinn með vindinn í bakið en nýttu sér það ekki og fór því sem fór. Næsti leikur er gegn Stjörnunni á heimavelli.