UMFG
Heim
föstudagur, 10 september 2010
 
 
Leikurinn í beinni
Höfundur Umsjónarmaður   
fimmtudagur, 18 mars 2010

Hægt verður að fylgjast með leik Grindavíkur og ÍR í beinni hér á Grindavík TV og hefst útsendingin klukkan 19:15.  Smelltu á sjónvarpið og horfðu á leikinn.
Fimleikamót um helgina
Höfundur Fimleikadeildin   
fimmtudagur, 18 mars 2010
Næstkomandi sunnudag verður haldið innanfélagsmót í fimleikum í íþróttahúsinu kl. 10:00. Er þetta fyrsta mótið sem fimleikadeildin heldur og er mikil spenna hjá öllum iðkendum vegna þess. Grunnskólabörnin keppa á nokkrum áhöldum og í átta hópum. Veitt verða verðlaun fyrir hvert áhald i hverjum hóp. Áætlað er að mótslok verði í kringum 16:00 en þá mun Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri krýna innanfélagsmeistara hjá stúlkum eldri og yngri og drengjum.

Leikskólahóparnir fara í gengum þrautbraut og fá viðurkenningu fyrir.

Hvetjum við alla til að koma og fylgjast með skemmtilegu móti.

Dagskrá:
Mót hefst kl: 10.00:
Keppnistímar hópanna eru eftirfarandi en allir mega horfa á aðra hópa þegar þeir eru ekki að keppa. Inní þeim tíma sem uppgefinn er fyrir hvern hóp er gert ráð fyrir upphitunartíma og verðlaunaafhendingu.
Kl. 10.00 - 11.00 Leikskólahópar (L 1 og L 2)
Kl. 10 - 12 Hópar 1, 2 og 3
Kl. 12 - 14 Hópar 9 og 10 (drengir)
Kl. 13.30 - 16.30 Hópar 4, 5, 6, 7 og 8 .Keppendur koma með búning og nesti.

Keppt verður til verðlauna hjá grunnskólakrökkum en leikskólakrakkar fá viðurkenningu fyrir þátttöku:
Verðlaun veitt fyrir 1. - 3. sæti á hverju áhaldi en auk þess er tekinn saman samanlagður stigafjöldi keppenda á öllum áhöldum og veitt sérstök verðlaun til stigahæstu stúlku í eldri og yngri hóp og stigahæsta drengsins.

Fer bikarinn á loft í Seljaskóla í kvöld?
Höfundur Umsjónarmaður   
fimmtudagur, 18 mars 2010

Lokaumferðin í Iceland Express deild karla fer fram í kvöld og verða deildarmeistarar krýndir að leikjunum loknum.  Grindavík mætir ÍR í Seljaskóla og Snæfell fær KR í heimsókn.
Í dag er KR komið með aðra hönd á bikarinn en þeir eiga eftir að fara á mjög erfiðan útivöll í Stykkishólmi. 

Grindavík þarf hinsvegar að einbeita sér að leiknum við ÍR og vinna hann. Það gerist með góðum stuðningi sem flestra og allir hvattir til að mæta.  Þau sem ekki komast geta horft á beina lýsingu á www.umfg.is/grindaviktv/

Til að komast í gírinn fyrir kvöldið er hægt að kíkja á nýtt myndband af troðslu Ólafs Ólafssonar hér
Hjartastuðtæki
Höfundur Gunnlaugur Hreinsson   
fimmtudagur, 18 mars 2010
Á aðalfundi kvennadeildar björgunarsveitarinnar Þorbjörns fékk Ungmennafélag Grindavíkur að gjöf hjartastuðtæki.
Aðalstjórn UMFG tók við gjöfinni og hefur fært knattspyrnudeildinni.

Ný hjartastuðtæki eru því komin á Grindavíkurvöll og í sundlaugina því á dögnum færði sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur sundlauginni tæki en fyrir var sambærilegt tæki í íþróttahúsinu. 
Keppnisleyfi án athugasemdar
Höfundur Umsjónarmaður   
fimmtudagur, 18 mars 2010
Til að öðlast keppnisrétt í efstu deild í knattspyrnu þarf að skila inn ýtarlegum leyfisgögnum sem tekin eru fyrir á fundi leyfisráðs KSÍ.  Fyrsti fundur ráðsins var í gær og veitti það Grindavík keppnisleyfi án athugasemdar.
Vinningar í happdrættinu
Höfundur Umsjónarmaður   
fimmtudagur, 18 mars 2010
Meistaraflokkur karla stendur fyrir happdrætti þessa dagana sem fjáröflun fyrir æfingarferð sína.  Vinningarnir eru ekki að verri endanum en þeir eru t.d.
32 tommu flatskjár, flug og gisting á Akureyri, ferðavinningur frá Úrval Útsýn, árskort í Bláa Lónið, ársmiði á Grindavíkurvöll, úttekt í Sportlandi, vöruútekt í Bónus, úttekt hjá Skeljungi og íþróttagalli.
Enn fleiri vinningar munu svo bætast við.

Meistaraflokkur kvenna er einnig með happdrætti þar sem einnig er í boði margir glæsilegir vinningar eins og flugfar með Icelandair, sumarbústaður í viku, mánaðarkort í líkamsrækt og margt fleira en listinn er hægt að sjá á blogsíðu happdrættisins
Grindavík TV á morgun...!
Höfundur Bensó   
miðvikudagur, 17 mars 2010

Grindavík TV ætlar að sýna beint frá leik Grindavíkur og ÍR á morgun, eins og flestum er kunnugt þá geta Grindjánar tryggt sér deildameistaratittilinn ef þeir vinna og KR tapa í hólminum.

Þrátt fyrir að Grindavík TV verði með beina útsendingu þá hvetjum við alla að mæta og sjá bikarinn fara á loft í Breiðholtinu...!

Áfram Grindavík!

Getur spennan orðið meiri???!!!
Höfundur Sibbi   
mánudagur, 15 mars 2010
Eftir 21.umferðina sem kláraðist í kvöld, er allt gersamlega í járnum í Iceland Express deildinni!!  Keflvíkingar gerðu sér lítið fyrir og unnu KR á útivelli og við kláruðum auðvitað Fsu á heimavelli.
Nánar...
Grindavík-FSu í beinni
Höfundur Umsjónarmaður   
mánudagur, 15 mars 2010


Leikurinn í kvöld verður að sjálfsögðu í beinni hér á www.umfg.is/grindaviktv  Útsendingin hefst klukkan 19:15 og hægt að sjá hana með því að smella á myndina hér fyrir ofan.
Grindavík-FSu í kvöld
Höfundur Umsjónarmaður   
mánudagur, 15 mars 2010

Grindavík mætir FSu í kvöld síðasta heimaleik Grindavíkur í deildarkeppninni í kvöld.  Grindavík á þennan leik í kvöld og svo gegn ÍR í Seljaskóla  á fimmtudaginn áður en úrslitakeppnin hefst.  
Leikurinn í kvöld er því mikilvægur því baráttan um heimaleikjaréttina í úrslitakeppninni er í hámarki.  KR er efst með 34 stig en Keflavík og Grindavík koma þar næst með 30 stig.   Snæfell, Stjarnan og Njarðvík fylgja svo fast á eftir með 28 stig. 

En fyrsta skrefið er að vinna í kvöld og því eru allir hvattir til að mæta og styðja strákana því FSu er sýnd veiði en ekki gefin.
Úrslit í Lengjubikarnum
Höfundur Umsjónarmaður   
mánudagur, 15 mars 2010
Karla og kvennaliðin tóku þátt í Lengjubikarnum um hlegina.  Strákarnir mættu Þór í Akraneshöllinni þar sem Þór komst tvívegis yfir en Akureyringarnir Orri Freyr Hjaltalín og Jóhann Helgason jöfnuðu.  Orri lagði einnig upp sigurmarkið sem Ondo skoraði úr og því lokatölur 3-2 fyrir okkar menn.

Stelpurnar mættu FH í Reykjaneshöllinni og komust yfir á 58. mínútu með marki frá Þórkötlu Sif Albertsdóttir en Sara Atladóttir og Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir skoruðu fyrir FH og lönduðu sigri gestana.
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 218 - 248 af 2408
Samstarfsaðilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið