|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
miðvikudagur, 12 maí 2010 |

Eftir 7 mánaða bið var loksins komið að fyrsta leiknum í Pepsi-deildinni, Stjörnumenn heimsóttir, fleisti menn heilir og allt tilbúið. Allt leikplan fór hinsvegar forgörðum eftir 90 sekúndur þegar Steinþór fékk sendingu inn fyrir vörn Grindavíkur og Auðun braut á honum innanteigs. Rautt spjald og víti, allt samkvæmt bókinni en bókin full ströng þar sem þetta hefur afgerandi áhrif á leikinn. Halldór Orri Björnsson tók vítið og skoraði en Óskar var nálægt því að verja. |
|
Nánar...
|
|
|
Björn Lúkas Norðurlandameistari |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
þriðjudagur, 11 maí 2010 |
Grindvíkingurinn Björn Lúkas Haraldsson varð Norðurlandameistari 15-16 ára í -81 kg flokki um helgina er keppt var í Laugardalshöllinni um helgina. Björn Lúkas lagði Aron Gylfa Svavarsson í úrslitum. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Birni sem er mikið efni.
Þetta voru ekki einu verðlaunin hjá Grindvíkingum á mótinu því Reynir Berg Jónsson vann til bronsverðlauna í sínum þyngdarflokki.
Sigurpáll Albertsson keppti einnig á mótinu en hann varð hársbreidd frá því að komast á verðlaunapall. Þarna er að skila sér áratuga vinna Jóhannesar Haraldssonar sem þjálfara júdódeildarinnar.
Björn Lúkas segist vera heppinn hafa Jóhannes sem þjálfara, hann sé einfaldlega besti þjálfarinn í bransanum.
Íslendingar sópuðu til sín verðlaunum á mótinu í öllum flokkum. |
|
|
Scotty skrifar undir 3ja ára samning |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
þriðjudagur, 11 maí 2010 |
 Knattspyrnuvertíðin í Pepsi-deild karla í knattspyrnu hefst í kvöld hjá Grindavík þegar okkar menn sækja Stjörnuna heim í Garðabæ en leikurinn hefst kl. 19:15. Búist er við hörku leik. Þau gleðitíðindi bárust úr herbúðum fótboltans í gærkvöldi að reynsluboltinn og skemmtikrafturinn Scott Ramsey skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Scott Ramsey sem er 34 ára hefur verið lykilmaður í Grindavík síðan hann kom hingað fyrst 1998. Hann lék þá til 2003 með liðinu, fór í KR, Keflavík og Víði en kom aftur 2007. Ramsey sagðist eftir undirskriftina í gær eiga a.m.k. 3 góð ár eftir í boltanum og hann sé alsæll að ljúka ferlinum í Grindavík. Þá sagðist hann fullur tilhlökkunar fyrir sumarið og að Grindavík sé lið sem eigi eftir að koma mörgum á óvart. Grindavík á harma að hefna gegn Stjörnunni því liðin mættust einnig í fyrsta leik Íslandsmótsins í fyrra. Þá hafði Stjarnan betur 3-1. Allir leikmenn Grindavíkurliðsins eru heilir fyrir leikinn í kvöld fyrir utan Pál Guðmundsson sem er meiddur í baki. Grindvíkingar eru hvattir til að mæta í Garðabæ í kvöld og styðja við bakið á strákunum. |
|
|
Höfundur Bjarni Már Svavarsson
|
|
laugardagur, 01 maí 2010 |
Aðalfundur sunddeildar UMFG verður haldinn þriðjudaginn 11 maí kl 20:00 í aðstöðu UMFG (útistofu við grunnskólann) dagská fundarins:
venjuleg aðalfundarstörf
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur
- Kosning Stjórnar
- Önnur Mál
|
|
|
Stjarnan-Grindavík á morgun |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
mánudagur, 10 maí 2010 |
Nú er loksins komið að því að Pepsi-deildin byrji. Fyrsti lekurinn er annaðkvöld og það gegn Stjörnunni í Garðabæ.
Liðin hafa mæst í fyrstu umferð síðustu 2 ár. 2007 mættust þau í 1.deildinni og fór Grindavík þá með sigur af hólmi 3-1 með mörkum frá Mounir, Andra Stein Bigisson og Goran Vujic(sá sem þótti vera með sérstakan hlaupastíl)
Bæði liðin fóru upp það ár(Grindavík sem deildarmeistarar) og mættust liðin einnig í Garðabæ í fyrstu umferðinni í fyrra. Þá sigruðu Stjörnumenn eins og reyndar flesta aðra heimaleiki á gervigrasinu. Ondo skoraði mark Grindavíkur og setti hann sömuleiðis inn eitt í seinni umferðinni í Grindavík þegar okkar menn sigruðu 4-2. Aðrir markaskorarar í þeim leik voru Óli Baldur, Zoran og Scotty.
Í vetur áttust liðin í Lengjubikarnum þar sem Ondo gerði þrennu og hefur því skorað 5 mörk í þremur leikjum sínum gegn Garðbæingum.
|
|
|
Gunnar Þorsteinsson til Blackburn |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
mánudagur, 10 maí 2010 |
Gunnari Þorsteinssyni leikmanni Grindavíkur hefur verið boðið að koma til æfinga hjá enska úrvalsdeildarliðinu Blackburn í vikunni og spila æfingaleilk með unglingaliði félagsins. Reyndar gætu flugsamgöngur sett strik í reikninginn varðandi heimsóknina. Gunnar er 16 ára, fæddur 1994, og hefur spilað bæði sem miðjumaður og bakvörður. Hann hefur æft með U17 í vetur og kom tvisvar inn á með meistaraflokki Grindavíkur í Pepsideidinni í fyrra. |
|
|
Nýr leikmaður:Vilhjálmur Einarsson |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
mánudagur, 10 maí 2010 |
Grindavík hefur bæst liðsauki fyrir sumarið í meistaraflokki karla því Vilhjálmur Darri Einarsson hefur ákveðið að ganga til liðs við félagið. Hann var á mála hjá KR en fékk sig lausan undan samningi. Vilhjálmur er einn af efnilegri knattspyrnumönnum landsins. Hann er fæddur 1991, miðjumaður og lék 7 landsleiki með U17 þegar Lúka Kostic, núverandi þjálfari Grindavíkur, stýrði landsliðinu. Þá hefur hann spilað tvo U18 leiki. Vilhjálmur er af miklum íþróttafólki kominn, faðir hans er Einar Vilhjálmsson spjótkastari og afi hans og nafni er hinn eini og sanni silfurmaður sem komst á verðlaunapall í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956. |
|
|
Góður árangur á Vormóti Breiðabliks |
|
Höfundur Bjarni Már Svavarsson
|
|
sunnudagur, 09 maí 2010 |
Góður árangur náðist hjá okkar sundfólki á Vormóti Breiðabliks sem fram fór um helgina, í heildina náðust 13 verðlaunapeningar og var þónokkuð um bætingar hjá okkur
|
|
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
föstudagur, 07 maí 2010 |
Það eru margar hendur sem koma að hverjum heimaleik Grindavíkur í Pepsi deild karla og kvenna, allt frá miðasölu, gæslu, afgreiðslu í söluturnum og margt fleira.
Knattspyrnudeildin mun í kvöld klukkan 19:00 halda grillveislu fyrir þessa sjálfboðaliða og mun hún fara fram við gula-húsið. Makar og börn velkomin. |
|
|
Grindavík 4 - Afturelding 3 |
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
föstudagur, 07 maí 2010 |
Grindavík og Afturelding mættust í Lengjubikarnum í gær. Leikurinn, sem jafnframt var lokaleikur Lengjubikarsins, fór fram á gamla aðalvellinum í Grindavík .
Afturelding komst yfir á 11 mínútu en Þórkatla Albertsdóttir jafnaði leikinn og kom Grindavík yfir með mörkum með 5 mínútna millibili. Afturelding jafnaði fyrir hálfleik og stóðu leikar 2-2 þegar gengið var til búningsklefa.
Anna Þórunn Guðmundsóttir kom Grindavík aftur yfir á 56 mínútu, Afturelding jafnaði aftur en Anna Þórunn tryggði Grindavíkurstúlkum sigurinn á 70 mínútu.
Smelltu á "Nánar" hér fyrir neðan til að sjá fleiri ramma af marki Önnu en myndirnar tók Gunnþór Sigurgeirsson |
|
Nánar...
|
|
|
Höfundur Umsjónarmaður
|
|
fimmtudagur, 06 maí 2010 |
Hinn árlegi kynningarfundur Pepsi deild karla og kvenna stendur nú yfir í Háskólabíó. Meðal efnis er kynnt spá forráðamanna liðana og samkvæmt henni mun bæði karla og kvennaliðið lenda í 8. sæti, strákarnir fengu 181 stig og stelpurnar 86. KR er hinsvegar spáð sigri í karlaflokki og Val í kvennaflokki.
Á fundinum var farið yfir mótamál knattspyrnusumarsins sem og áherslur frá dómaranefnd KSÍ. |
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 156 - 186 af 2408 |