Í dag verður sunddeild UMFG með opna æfingu frá klukkan 17:00-18:00. Þar mun sunddeildin kynna starfsemi sína og býður öllum börnum og unglingum í sund.
Íþrótta- og tómstundadagar um næstu helgi
Höfundur Umsjónarmaður
miðvikudagur, 08 september 2010
Út er komin frístundahandbók þar sem fjallað er um þær frístundir sem boðið er upp á hér í Grindavík. Meðal annars er fjallað um íþróttagreinarnar og starf UMFG.
Um næstu helgi verður jafnframt haldnir íþrótta- og tómstundadagar. Dagskrá dagana er eftirfarandi: Föstudagur 10. september: - Kl. 17:00 - 18:00 OPIN SUNDÆFING. Sunddeild UMFG kynnir starfsemi sína og býður öllum börnum og unglingum að koma í sund.
Laugardagur 11. september: - Kl. 10:00 - 11:00 OPIN KÖRFUKNATTLEIKSÆFING. Körfuknattleiksdeild UMFG kynnir starfsemi sína og býður öllum börnum 12 ára og yngri að koma í körfubolta. - Kl. 11:00 - 12:00 OPIN KÖRFUKNATTLEIKSÆFING. Körfuknattleiksdeild UMFG kynnir starfsemi sína og býður öllum unglingum 13 ára og eldri að koma í körfubolta. - Kl. 10:00 - 11:00 OPIN JÚDÓÆFING. Júdódeild UMFG kynnir starfsemi sína og býður öllum börnum og unglingum að koma í júdó. - Kl. 11:00 - 12:00 OPIN TAEKWONDOÆFING. Taekwondódeild UMFG kynnir starfsemi sína og býður öllum börnum og unglingum að koma í taekwondó. - Kl. 13:00 - 14:00. Fimleikadeild UMFG kynnir PARKOUR-íþróttin og býður öllum börnum og unglingum að koma og prófa. Boðið verður upp á námskeið í Parkour í haust. - Kl. 13:00 - 14:00 Kynning á tómstundaframboði. Eftirtalin tómstundafélög kynna starfsemi sína í anddyri íþróttahússins. o Hjónaklúbburinn o Unghjólaklúbburinn o Kvenfélagið o Rauði krossinn o Hestamannafélagið Brimfaxi o Æskulýðsstarf kirkjunnar o Aðalstjórn UMFG - Kl. 14:00 - 15:00 DANSSKÓLINN kynnir starfsemi sína. Í Kvennó. Börn, unglingar og fullorðnir velkomnir. Tekið við skráningum.
Sunnudagur 12. september: - Kl. 11:00 - 12:00 OPIN KNATTSPYRNUÆFING í Hópinu. Knattspyrnudeild UMFG býður öllum börnum 12 ára og yngri að koma í fótbolta. - Kl. 13:00 - 14:00 OPIN KNATTSPYRNUÆFING í Hópinu. Knattspyrnudeild UMFG býður öllum unglingum 13 ára og eldri að koma í fótbolta. - Kl. 14:00 - 16:00 OPIÐ HÚS í björgunarsveitarhúsinu og hjá Slökkviliði Grindavíkur. Björgunarsveitin Þorbjörn, Unglingsdeildin Hafbjörg, Slysavarnardeildin Þórkatla og Slökkvilið Grindavíkur bjóða bæjarbúum öllum að kynna sér starfsemi sveitanna.
3. flokkur kvenna í undanúrslit
Höfundur Umsjónarmaður
miðvikudagur, 08 september 2010
Stelpurnar í 3. flokki stúlkna hafa gert það gott í sumar en þær tryggðu sér sigur í einum af B-riðlunum þremur. Þar með tryggðu þær sér farseðilinn í undanúrslitum Íslandsmótsins þar sem Grindavíkurstelpur mæta Val á fimmtudaginn. Dregið var um hvort liðið fær heimaleik og kom það í hlut Vals þannig að leikurinn fer fram kl. 17:15 á Hlíðarenda.
Ljóst er að Grindavíkurstúlkna bíður ansi erfitt verkefni því Valur burstaði A-riðil án þess að tapa leik. Hins vegar er auðvitað allt hægt í fótbolta og stelpurnar hafa sýnt það í sumar að á góðum degi geta þær unnið öll lið.
Á myndinni er 3. flokkur Grindavíkur ásamt þjálfara sínum, Pálma Ingólfssyni
Tapað - Fundið
Höfundur Eysteinn
mánudagur, 06 september 2010
Óskilamunir sem fundist hafa í Hópinu og á fótboltasvæðunum verða "útbreiddir" í búningsklefahúsinu (við hliðina á því Gula) á milli kl. 13:00 og 17:00 á morgun, þriðjudag.
Kennir þar ýmissa grasa, að sögn Begga, hins eina sanna, sem stendur fyrir þessari sýningu.
Kíkið endilega við.
Æfingatafla fimleikadeildarinnar
Höfundur Dagný Erla
mánudagur, 06 september 2010
Fimleikar hefjast að nýju í dag, 6.september, og verða æfingar hjá 11 hópum á eftirfarandi dögum:
Grindavík skoraði tvö mörk í uppbótartíma gegn botnliði Hauka og tryggði sér eitt stig í Pepsideild kvenna sem voru nokkur vonbrigði því Grindavík sundurspilaði Hauka á köflum en misnotaði ein sex dauðafæri. Þar sem FH vann Breiðablik afar óvænt er Grindavík í bullandi fallbaráttu og mætir Val og Fylki í tveimur síðustu umferðunum sem er ekki auðvelt verkefni.
Haukar lék undan strekkingsvindi í fyrri hálfleik og náðu forystu með markskoti lengst utan af velli skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks. Í seinni hálfleik var einstefna að marki Hauka og Grindavík óð í færum, sérstaklega framherjinn Shaneka Gordon sem var algjörlega fyrirmuna að skora lengst af. Í staðinn bættu Haukar við öðru marki, aftur með skoti af löngu færi. En Grindavíkurstelpum til hróss verður að benda á að þær gáfust aldrei upp. Gordon minnkaði muninn með skallamarki þegar klukkan sló 90 mínútur og aðeins mínútu seinna jafnaði Sara McFadden metin. Úrslitin 2-2 en Grindavík hefði sannarlega þurft á öllum þremur stigunum að halda.
Reykjanes-cup
Höfundur Umsjónarmaður
föstudagur, 03 september 2010
Nú stendur yfir Reykjanes-cup sem haldið er ár hvert í tengslum við Ljósanótt. Í gær var spilað í Grindavík þar sem öll Suðurnesjaliðin töpuðu. Leikirnir fóru þannig: Grindavík 98 - Fjölnir 101 Keflavík 66 - ÍR 89 Njarðvík 92 - Snæfell 102
Í kvöld er leikið í Keflavík og á Grindavík leik klukkan 21:00 þegar þeir mæta ÍR
Einnig eru stelpurnar að leika í hraðmóti UMFN og Kosts sem einnig er haldið í tilefni Ljósanætur. Þær byrjuðu að spila við Njarðvík og töpuðu 41-44. Í næsta leik sigruðu þær Haukastelpur 32-25 en í framlengdum leik við Hamar máttu þær þola tap 38-41
Í kvöld fara úrslitaleikirnir fram, Grindavík og KR mætast klukkan 16:45 og leikir um sæti seinna um kvöldið.
Grindavík-Haukar
Höfundur Umsjónarmaður
föstudagur, 03 september 2010
Grindavík Suðurnesjameistari í A liðum - Öll liðin gerðu þjálfara sinn stoltan
Höfundur Eysteinn
fimmtudagur, 02 september 2010
Suðurnesjameistarar í A-liðum 5. flokks. Frá vinstri: Ævar Andri Ámundínusarson, Hilmar Andrew McShane, Sigurður Bjartur Hallsson, Daníel Andri Pálsson, Ingvi Þór Guðmundsson, Magnús Ari Stefánsson, Boris Jugovic og Ingi Steinn Ingvarsson. Lengst til hægri er svo Alex Ferguson.
Keppt var á Suðurnesjamóti 5. flokks í Reykjaneshöllinni í dag og eiga allir strákarnir 24 stórt hrós skilið fyrir sína þátttöku.
Strákarnir hafa flestir sýnt miklar framfarir frá því í vetur, sérstaklega hvað varðar að standa rétt í vörn, senda boltann með réttum hætti og að reyna virkilega á sig frá fyrsta flauti til hins síðasta.
A liðið gerði sér lítið fyrir og snéri heim með bikar, en varla var veikan blett að finna á liðinu í dag. Boltinn gekk vel milli manna, frábær einleikur sást á köflum, eigingirni var hverfandi, erfitt var að komast í gegnum vörn okkar og marktækifærin voru vel nýtt. Komu flestir þjálfarar annara liða til mín og hrósuðu þessum strákum sérstaklega fyrir flottan og einbeittan leik. Strákarnir unnu fjóra leiki (Keflavík 2, Njarðvík, Reyni og Víði) og gerðu eitt jafntefli (gegn Keflavík). Þeir skoruðu 12 mörk og fengu aðeins á sig 1, sem er mjög athyglisvert. Þetta dugði til sigurs og fengu strákarnir bikar að launum, sem fyrirliðinn Boris tók við við mikinn fögnuð félaga sinna og hlupu þeir sigurhring að verðlaunaafhendingu lokinni.
B liðunum var skipt í tvö jöfn lið en þrátt fyrir það var annað þeirra aðeins hársbreidd frá því að komast í úrslitaleikinn.
B1 tapaði þremur leikjum á mótinu og gekk ekki nógu vel að sækja að marki andstæðinganna. Varnarleikurinn var hins vegar ekki sem verstur, en liðið fékk á sig 6 mörk í 4 leikjum. Þeir unnu hins vegar góðan sigur á Njarðvík í lokaleiknum og náðu því að fagna sigri, en enduðu í 7.sæti af 8 liðum. B2 gekk mjög vel og unnu Keflavík2 og Njarðvík en töpuðu fyrir Keflavík4 í riðlinum. Þrjú lið enduðu efst og jöfn í riðlinum en því miður vorum við með lökustu markatöluna af þeim og spiluðum því úrslitaleik um 5. sætið gegn Þrótti Vogum (a-lið). Hann var æsispennandi og eftir markalausan leik var farið í vítakeppni. Gabríel Þór og Sverrir Týr skoruðu af fádæma öryggi úr sínum spyrnum, en það var enginn annar en 6. flokks maðurinn Sigurjón sem tryggði okkur sigur með því að verja 2 vítaspyrnur af 3! Sigurjón átti að taka síðustu spyrnu okkar, í nokkurs konar verðlaun fyrir að taka að sér markmannsstöðuna í mótinu, en með því að verja tvær var engin þörf á því að taka síðustu spyrnuna.
Takk fyrir skemmtilegt mót, strákar og foreldrar. Þið gerðuð mig virkilega stoltan með ykkar frammistöðu og segi ég það og skrifa að ef ekki koma margir meistaraflokksleikmenn út úr þessum flokki í framtíðinni, þá yrði um algjört vindhögg að ræða.
Breytingar á sundtöflu
Höfundur Bjarni Már Svavarsson
miðvikudagur, 01 september 2010
Frá og með deginum í dag tekur í gildi ný æfingatafla fyrir sunddeildina. Hægt er að nálgast hana hér
Reykjanes cup og hraðmót Njarðvíkurkvenna.
Höfundur Sibbi
miðvikudagur, 01 september 2010
Eins og allir vita þá er körfuboltinn byrjaður að skoppa og taka meistaraflokksliðin okkar bæði þátt í mótum um helgina, í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ.