UMFG
Heim > Fréttir > Ray skrifar undir nýjan samning
föstudagur, 10 september 2010
 
 
Ray skrifar undir nýjan samning Senda
Höfundur Umsjónarmađur   
föstudagur, 05 mars 2010
Ray Anthony Jónsson hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild Grindavíkur

Ray, sem hefur spilað 127 leiki í efstu deild ásamt fjölda bikarleikja og nokkra Evrópuleikja (þar sem hann skoraði m.a. glæsilegt mark gegn FC Karnten í ágúst 2003), ætti eftir þessi 3 ár að vera sá leikmaður sem flesta leiki hefur spilað með Grindavíkurliðinu.

"Það kom ekkert annað til greina en að semja aftur við mitt lið.  Er búinn að ræða við forráðamenn knattspyrnudeildarinnar um samninginn í nokkurn tíma en við flýttum okkur hægt í þeim efnum en ég er ánægður með niðurstöðuna"
Ray hefur spilað flesta leiki sína sem bakvörður þó að hann hafi þótt skæðasti sóknarmaður liðsins í yngri flokkum, í síðustu leikjum í Lengjubikarnum hefur hann svo spilað í miðverðinum.
Áttu von á að því að spila meira þar?
"Nei ég býst ekki við því, Luka er bara að prófa okkur öðrum stöðum ef eitthvað kæmi upp á í leik og það þyrfti að breyta til"
< Fyrri   Nćst >
Samstarfsađilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið