| Sigur á Reyðarfirði |
|
| Höfundur Umsjónarmaður | |
| laugardagur, 27 febrúar 2010 | |
|
Grindavík lék sinn annan leik í Lengjubikarnum í dag er þeir mættu Fjarðabyggð í Fjarðabyggðahöllinni á Reyðarfirði. Knattspyrnufélgag Fjarðabyggðar komst yfir með marki fyrrum leikmanns Grindavíkur, Jóhanns Ragnar Benediktsssonar. Ondo hefur skorað í þeim leikjum sem hann hefur tekið þátt eftir að hann kom til landsins og hélt uppteknum hætti í dag. Fyrra mark hans kom á 30. mínútu og annað mark hans hálftíma seinna. Jósef skoraði rétt fyrir hálfleik og Páll lagði lokahöndina á 4-1 sigur með marki undir lokin. Næsti leikur er gegn Þór og fer fram í Akraneshöllinni 13. mars |
| < Fyrri | Næst > |
|---|
















