| "Gríðarlega mikilvægur sigur" |
|
| Höfundur Umsjónarmaður | |
| föstudagur, 26 febrúar 2010 | |
Grindavík gerði góða ferð í Garðabæinn í gær þar sem þeir sigruðu Stjörnuna 81-76.Með sigrinu höfðu liðin sætaskipti og Grindavík mjakast upp töfluna. Darrel Flake var öflugur í leiknum og var bæði efstur í fráköstum og stoðsendingum. Páll Axel var hinsvegar stigahæstur eins og svo oft áður með 24 stig. Hann var að vonum ánægður með sigurinn og hafði þetta að segja um leikinn "Við byrjuðum frekar illa, vorum á eftir þeim í fyrri hálfleik. En í þeim seinni batnaði leikurinn hjá okkur öllum og sýndum frábæran karakter með að sigla fram úr þeim" "Þetta er erfiður völlur og Stjarnan var fyrir ofan okkur á töflunni þannig að þetta var gríðarlega mikilvægur sigur" Næsti leikur er 4.mars gegn Keflavík í Keflavík. Umfjöllun karfan.is Myndir af leiknum tók Jón Björn Ólafsson og er þessi mynd þaðan, sjá fleiri Viðtal við Pál Axel á karfan TV Umfjöllun á visir.is Viðtal við Friðrik á visir.is Umfjöllun á mbl.is |
| < Fyrri | Næst > |
|---|









Grindavík gerði góða ferð í Garðabæinn í gær þar sem þeir sigruðu Stjörnuna 81-76.






