UMFG
Heim > Fréttir > STÓÓÓÓR sigur í gærkvöldi!!
föstudagur, 10 september 2010
 
 


STÓÓÓÓR sigur í gærkvöldi!! Senda
Höfundur Sibbi   
föstudagur, 26 febrúar 2010
Eftir vonbrigðin um síðustu helgi var ég hálf skeptískur varðandi leik gærkvöldsins á móti Stjörnunni en eins og Frikki þjálfari sagði í viðtali við Fréttablaðið í morgun að þá er fyrsti leikur eftir bikarúrslit ávallt hættulegur leikur, sama hvort maður hafði unnið og verandi kannski ennþá lengst uppi í skýjunum eða eins og við að hafa tapað og vera niðri í kjallara vegna vonbrigðanna.  En okkar menn sýndu frábæran karakter á móti sterku liði Stjörnumanna og það á þeirra heimavelli og vannst mjög mikilvægur baráttusigur, 76-81.

Leiksins verður ekki minnst fyrir mikið skemmtanagildi en staðan í hálfleik var 36-32.  Það að við höfum eingöngu skorað 32 stig í fyrri hálfleik segir allt sem segja þarf um sóknarleik okkar en hann var vægast sagt fálmkenndur og lélegur en allt annað var uppi á teningnum í seinni hálfleik en þá skoruðum við 49 stig sem er nær okkar meðaltali.  Jafn var á flestum tölum og munaði ekki nema 3 stigum þegar Stjörnumenn fengu boltann og einungis ca 7 sekúndur eftir en Jovan hlýtur að hafa mislesið á klukkuna því hann reyndi fáranlegt skot sem var hvergi nærri og Paxel kórónaði flottan leik sinn með því að setja vítaskotin niður.

Paxel hristi af sér slyðruorðið eftir bikarúrslitin um síðustu helgi en leikurinn í gær var svo sannarlega mjög mikilvægur upp á framhaldið og því stórleikur og hann sýndi því fram á að hægt er að stóla á hann í stóru leikjunum líka.  Sérstaklega steig hann upp í síðari hálfleik og var þá grimmur í sínum sóknarleik en hann getur dottið í alveg ótrúlegan sóknargír þar sem ekki skiptir máli hvort hann hleypi af fyrir utan eða keyri upp að körfunni en það gerði hann í nokkur skipti án þess að hinn nýji, stóri og stæðilegi serbneski miðherji Stjörnumann, Djordie Pantelic, fengi rönd við reist.  Palli var stigahæstur okkar manna með 24 stig og var næst framlagshæstur með 18 stig.

Framlagshæstur okkar manna og kannski jafnframt bestur, var Darrel Flake.  Hann setti 18 stig, tók 8 fráköst og gaf 5 stoðsendingar og þetta skilaði sér í 30 framlagsstigum.  Flake var að glíma við þennan stóra og þunga Serba en átti fullt í fangi með hann.  Flake er einfaldlega hörku góður leikmaður.

Ómar var 3.framlagshæstur með 15 (10 stig og 7 fráköst).  Troði var 4. í röðinni með 11 stig og var virkilega mikilvægur í lokin þegar hann tók mikilvæg sóknarfráköst og átti auk þess eina þrumutroðslu yfir Serbann stóra og átti að mínu mati auk þess að fá villu á Serbann og þar með vítaskot. 

Lalli bróðir hans leysti Arnar Frey virkilega vel af hendi en Arnar spilaði líklega sinn lélagsta leik í búningnum gula og fallega og átti þann vafasama heiður að vera með 2 mínusframlagsstig.  Arnar er vonandi búinn að ná pirringnum vegna bikarúrslitaleiksins úr sér og mætir dýrvitlaus á móti sínum gömlu félögum í næsta leik.  Lalli stjórnaði okkur vel í lokin og nýtti sér vel hæðarmun sinn umfram Justin Shouse sem gætti hans. 

Brenton hefur oft látið meira að sér kveða í sóknarleiknum og það er auðvitað flott að vinna á svo erfiðum útivelli með hann og Arnar Frey úti á túni í sóknarleiknum.  Björn Steinar spilaði rúmar 5 mínútur í seinni hálfleik og eitthvað hlýtur hann að hafa gert rétt á þeim tíma því við skoruðum 7 stigum meira en Stjörnumenn á þeim tíma.   Hann lék fína vörn á Jovan, stal einum bolta og tók eitt frákast.

Með þessum sigri færðumst við upp fyrir Stjörnumenn á betri innbyrðis stöðu en sem fyrr er nánast ómögulegt að spá fyrir um lokaniðurröðun í deildarkeppninni.  Fyrir þessa umferð var KR efst með 3 töp, Stjarnan og Keflavík næst með 4 töp og við, Snæfell og Njarðvík næst með 5 töp og við í 4.sæti vegna betri innbyrðisstöðu gegn Snæfelli og Njarðvíkingum.  Við sigurinn í gær færðist Stjarnan niður í 5 töp og við þar með betri innbyrðisstöðu svo við erum komnir í 3.sætið.  Keflavík og Snæfell ættu að klára sína heimaleiki í kvöld en virkilega gaman yrði að sjá Hamarsmenn stríða KR-ingunum ærlega í kvöld í Hveragerði!!  Gleymum ekki að við erum  með betri innbyrðisstöðu gegn KR sem þýðir að við myndum enda fyrir ofan þá ef við endum hæstir ásamt þeim.  Næsti leikur okkar er svo stórleikur líka en þá mæta Keflvíkingar í heimsókn sem tróna einir í 2.sætinu en með 9+ stiga sigri öðlumst við betri innbyrðisstöðu gegn þeim.  Og ef við leyfum okkur að hugsa enn lengra þá bíða Snæfellingar okkar í næstu umferð þar á eftir og í hólminum!!  Ef Snæfell vinnur ÍR í kvöld á heimavelli og Tindastól á útivelli í umferðinni þar á eftir þá myndum við mætast í sannkölluðum STÓRLEIK í hólminum sem myndi fara langt með að skera úr um hvort liðið myndi lenda í 2.sæti eða gera harða atlögu að efsta sætinu.  En ef-in og hefði og allt þar á milli eru of mörg til að hægt sé að spá í þessa hluti að einhverju viti og því er kannski bara best að einbeita sér bara að næsta leik sem er á fimmtudag, nt. 4.mars á heimavelli og hefst kl. 19:15.  Það er aldrei að vita nema ég muni henda inn pistli eða pistlum fyrir þann leik en ég hef ekki verið nógu virkur í skrifum mínum að undanförnu en lofa að bæta úr því :)

Áfram Grindavík!!

< Fyrri   Næst >
Samstarfsaðilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið