|
Sannfærandi sigur á toppliðinu |
|
|
Höfundur Sibbi
|
|
fimmtudagur, 04 febrúar 2010 |
|
Grindavík er heldur betur komið á beinu brautina en í kvöld unnum við KR sem var eitt á toppnum, 84-67. Þar áður unnum við Njarðvík á útivelli sem var þá á toppnum ásamt KR. Framhaldið lítur því vel út hjá okkur en næst er mikilvægasti leikur leiktíðarinnar til þessa, undanúrslit í bikarnum á móti ÍR og það á heimavelli.
Það sem er merkilegt við þennan sannfærandi sigur okkar manna í kvöld er að sóknin var síður en svo burðug en hún hefur verið okkar aðalsmerki til þessa. Leikurinn vannst á klassavörn en í einhverjum bókum segir að sókn vinni leiki en vörn vinni titla. Kannski er eitthvað til í því?? Við hittum ekki nema 14% 3-stiga skota okkar og var Paxel t.d. með 0/5 í þeim skotum. Við vorum sem betur fer heitari í skotunum inni í teig og vítin hafa oft geigað meira en sóknarleikurinn var bara ekkert til að hrópa húrra yfir. Það gerir þennan sigur athyglisverðari og ætti að láta okkur líða vel yfir framhaldinu því á eðlilegum degi erum við með mjög gott sóknarlið.
Lalli var stigahæstur okkar í kvöld með 19 stig en auk þess stal hann 4 boltum og varði aðra 2. Hann skilaði 13 framlagspunktum. Ómar var frákastahæstur með 12 og virðist vera kominn á tvennubrautina góðu en hann setti 15 stig niður í kvöld. Hann var framlagshæstur okkar mann með 27 punkta. Flake var með 14 framlagsstig (15 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar) en hann hefur oft verið heppnari með skot sín hann er yfirleitt einkar lunkinn með „baby hook“ skotin sín. Paxel og bræðurnir komu næstir með 13 framlagsstig, Palli með 14 stig og 8 fráköst, Óli með 11 stig og 4 fráköst en áður er búið að geta framlags Lalla. Vert er að benda á fídus í stat-flóði KKÍ að okkur gekk best skv. tölfræðinni þegar Palla naut við en við vorum 24 stig í + á meðan hann var inni á vellinum. Arnar gaf sem fyrr, flestar stoðsendingar eða 8 talsins.
Við erum því komnir á hörku run í deildinni en nú setjum við hana í salt í bili og förum að einbeita okkur að einum mikilvægasta leik tímabilsins til þessa, sjálfum undanúrslitaleiknum í Subway bikarnum. Ég játa það hér með að ég er smeykur við þennan leik því það er mjög oft eftir gott gengi sem okkar menn gleyma sér og mæta ekki með toppstykkið rétt skrúfað á og þá geta slysin orðið. Væntanlega geta flestir verið sammála um að við séum sigurstranglegri í þessum leik en það getur bara verið svo hættulegt. Við vorum örugglega sigurstranglegri í fyrri skiptin tvö sem við mættum ÍR á heimavelli í undanúrslitum bikarsins en það var árin 2001 og 2007. Í bæði skipti töpuðum við og því ætti það ekki að geta skeð líka núna??? Menn hafa þessa leiki vonandi vel í huga og mæta dýrvitlausir til leiks og ef það verður, þá hef ég ekki áhyggjur. Við erum með virkilega gott körfuboltalið og erum að mínu mati liðið sem þarf að vinna til að komast að bikarnum, Deildartitlinum og sjálfum Íslandsmeistaratitlinum. Þetta segi ég m.v. að menn mæti dýrvitlausir til leiks, ef við gerum það ekki, þá erum við miðlungslið í mesta lagi. Mætum öll dýrvitlaus til leiks á mánudagskvöldið kl. 19:15 og sækjum farmiðann í höllina.
Áfram Grindavík! |