 Í kvöld er ansi mikilvægur leikur hjá okkar mönnum en þá mæta þeir röndóttu úr Vesturbænum í heimsókn í Röstina okkar en KR-ingar eru efstir í Iceland Express deildinni með 12 sigra og 2 töp en við erum í 6 sæti með 9 sigra og 5 töp. Leikurinn hefst kl. 19:15 og eru allir hvattir til að mæta á leikinn og þótt Bensó sé skemmtilegur í lýsingum sínum, þá eru þær ætlaðar þeim sem alls ekki komast á leikinn svo allir hinir eiga að mæta og hvetja okkar menn.
KR-ingar voru nokkuð óskrifað blað fyrir þetta tímabil þar sem þeir misstu 3 af sínum bestu mönnum frá síðasta tímabili, Jón Arnór, Jakob og Helga Má auk þess sem Benedikt þjálfari færði sig yfir í kvennaklefa KR-inganna og Páll Kolbeins tók við körlunum. Kaninn þeirra frá því í fyrra, Jason D...... hélt af landi í brott en í staðinn fengu þeir leikstjórnandann Semaj Inge og svo eru þeir með Tommy Johnson sem lék með Keflvíkingum fyrir 2 árum en hann er kani með evrópskt vegabréf. En KR-ingar hafa leikið liða best það sem af er og eru sem fyrr segir, efstir með 12 sigra og 2 töp en töpin komu á móti Njarðvík og Stjörnunni. KR hafa unnið 5 leiki í röð og eru á góðu „runi-i“. Þeir styrktu sig um daginn þegar Pavel Ermolinski kom að láni út þetta tímabil frá liði sínu á Spáni. Pavel er leikstjórnandi að upplagi svo fróðlegt verður að sjá hvernig Páll Kolbeins mun láta þá spila hann og Semaj. Efstir KR-inga í helstu tölfræðiþáttum eru Semaj Inge sem er stigahæstur með 20,3 stig að meðaltali en hann gefur einnig flestar stoðsendingar eða 5,1. Fannar Ólafs er frákastahæsti leikmaður liðsins með 8,4 fráköst í leik. Okkar hæstu menn í tölfræðinni góðu eru Darrel Flake sem er stigahæstur með 21,2 stig, Ómar er frákstahæstur með 8,1 frákast og Arnar Freyr er stoðsendingahæstur með 6,5 stoðsendingar. Paxel kemst hér ekki á blað en ef mið er tekið af frammistöðu leikmanna eftir áramót, þá kemst hann á blað svo um munar!! Stígandinn í leik Palla er búinn að vera glæsilegur en hér er samanburður á helstu tölfræðiþáttum hans á leiktíðinni:
Stig Stoðsendingar Stolnir boltar Framlag 3% Okt 15,8 1 1,8 14,3 34,6 Nóv 17,2 1,4 1,8 15,6 42,9 Des 26 2,5 1,5 28 41,2 Jan 30,7 3,3 3,3 30,3 51,4
Það er nokkuð ljóst í mínum huga að ef Palli heldur áfram með þennan stíganda út leiktíðina, að þá gerum við harða atlögu að þeim titlum sem í boði eru. Hann er búinn að vera frábær undanfarið og setti m.a. 54 stig á móti Tindastóli í fyrsta leik ársins, það jaðrar við stigamet á Íslandi!! Af öðrum leikmönnum er það að frétta fyrir morgundaginn að Brenton er spurningarmerki en hann fékk högg á lærið í frábærum sigri okkar manna á móti Njarðvík um daginn. Hann er búinn að jafna sig af gömlu meiðslunum sem voru að mestu, aftan í lærinu en er búinn að vera aumur í lærinu framanverðu eftir höggið sem hann fékk. Vonandi mun Brenton spila með en heill er hann ennþá einn af betri leikmönnum deildarinnar. Góðar fréttir eru þær að Lalli er búinn að jafna sig og verður með. Lalli er auðvitað frábær leikmaður sem drífur aðra með sér með baráttu sinni. Þessi leikur er jafn mikilvægur og Njarðvíkurleikurinn var um daginn en með tapi þá þurfum við væntanlega ekki að hugsa mikið út í KR-ingana það sem eftir lifir Deildarkeppninnar. Það munar 3 töpum á okkur og hæpið að við myndum ná að brúa 4 leiki. Sigur færir okkur aðeins 2 töpum frá þeim og allt því opið upp á framhaldið. KR-ingar eiga öll liðin í efri hlutanum eftir en við erum búnir með þá grænklæddu úr Reykjanesbænum. Það er ómögulegt að spá fyrir um lokaniðurröðun því liðin munu reita stig af hvort öðru þar til yfir lýkur.
Byrjum á að vinna þennan leik í kvöld og hugum svo að framhaldinu. Ég hvet aftur alla til að mæta á leikinn og láta vel í sér heyra. Á góðum degi eru grindvískir áhorfendur þeir bestu á landinu og þegar það er, þá er um 6.manninn að ræða og getur hann oft ráðið úrslitum.
Áfram Grindavík!! |