| Grindavík 7 - Ţróttur V 1 |
|
| Höfundur Umsjónarmađur | |
| mánudagur, 01 febrúar 2010 | |
|
Grindavík sigraði Þrótt Vogum í Reykjaneshallarmótinu með 7 mörkum gegn 1. Grétar Ólafur Hjartarson spilaði sinn fyrsta leik síðan hann sleit krossbönd í júlí 2008 og skoraði eitt mark, sem eru frábærar fréttir fyrir stuðningsmenn Grindavíkur og íslenskan fótbolta. Jósef Kristinn Jósefsson skoraði 2 mörk og þeir Jóhann Helgason, Sveinbjörn Jónasson, Scott Ramsey og Óli Baldur Bjarnason sitt markið hver. Mark Þróttar skoraði Hallur Ásgeirsson sem er spilandi þjálfari liðsins. Næsti leikur Grindavíkur í mótinu er gegn Njarðvík. |
| < Fyrri | Nćst > |
|---|
















