| Frítt á leikinn í kvöld í boði Þróttar |
|
| Höfundur Bensó | |
| miðvikudagur, 27 janúar 2010 | |
|
Grindavík og Hamar spila í kvöld miðvikudag í Icelandexpress deild kvenna, sem stendur er Grindavík í öðru sæti en Hamar í þriðja, án efa verður þetta hörku toppslagur. Grindavíkurstelpur eru búnar að vinna átta af síðustu níu leikjum. Þróttur fiskvinnsla býður öllum Grindvíkingum frítt á leikinn, frábært framtak hjá þeim. fyrir þá sem komast ekki á leikinn þá er leikurinn sýndur beint á Grindavík TV Áfram Grindavík Stelpurnar hafa verið á góðu „run-i“ undanfarið en síðast töpuðu þær í deildinni á móti hinu ósigraða liði í deildinni, KR-ingum, þann 2.desember. Því miður þá töpuðu stelpurnar í 8 liða úrslitum í bikarnaum á móti Keflavíkurstúlkum en síðan þá hefur leiðin eingöngu legið upp á við. Búið er að styrkja liðið til muna en Joanna Skiba sem lék með liðinu tímabilið 2007-2008, kom til landsins í janúar og er búin að leika einn leik þar sem hún skoraði 12 stig, tók 5 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Leikur liðsins verður mun hraðari með tilkomu Joönnu en stelpurnar í liðinu vilja meina að hún sé jafnvel betri leikmaður í dag en síðast þegar hún lék með okkur en í fyrra lék hún á Spáni.
Þegar forystuær deildarinnar í helstu tölfræðiþáttunum eru skoðaðar, þá kemur í ljós að við eigum einn leikmann í þeim hópi. Heather Etzell í Haukum er stigahæst í deildinni með 31,1 stig, Hildur Sigurðar í KR er stoðsendingahæst með 6,4 en frákastahæst er hin grindvíska Helga Hallgrímsdóttir með 11,1 frákast að meðaltali. Kíkjum á samanburð milli mánuða hjá henni:
Eins og áður hefur komið fram er hinn nýji tölfræðivefur KKÍ fullur af fróðleik og er hægt að gleyma sér vel í alls kyns pælingum, t.d. í samanburði á milli leikmanna.
|
| < Fyrri | Næst > |
|---|

















