|
Okkar Grindvíkingar urðu í gærkvöldi fyrsta liðið til að leggja Njarðvíkinga af velli á heimavelli þeirra Grænklæddu, Ljónagryfjunni, þegar þeir unnu 99-102. Leikurinn var frábær skemmtun frá upphafi til enda og gefur okkur Grindjánum góð fyrirheit fyrir framhaldið.
Við vorum yfir nánast allan tímann og höfðum 9 stiga forystu í hálfleik. Paxel var sjóðandi heitur í fyrri hálfleiknum og var með 21 stig eftir hann. Darrel Flake lék ekkert í 2.leikhluta eftir að hafa fengið 3.villu sína í þeim fyrsta en nokkuð ljóst má þykja held ég að ég hefði blúsað mikið yfir dómgæslunni ef sigurinn hefði fallið „öfugu megin“ en mér fannst halla nokkuð á mína menn í gær en sem betur fer þá kom það ekki að sök. Það vantaði 2 menn í okkar lið, þá Lalla og gamla Brenton en í staðinn var mættur glænýr leikmaður, hinn nýji Brenton Birmingham!! Í fyrsta skipti í vetur kennir Brenton sér ekki meins og er eins og um nýjan leikmann sé að ræða og við vitum öll hversu frábær leikmaður Brenton er og munar aldeilis um minna fyrir okkur. Brenton setti 14 stig í gær og spilaði auk þess sína landsþekktu, fantagóðu vörn. Welcome back Brenton!! Arnar Freyr sneri líka til baka í gær en hann hefur ekki alveg jafnað sig af sínum meiðslum og verður frábært þegar hann verður orðinn alheill, ekki það að hann hafi verið einhver dragbítur í gær en hann smellti 11 stoðsendingum á tölfræðiskýrsluna en eins og ég segi, það verður frábært að fá hann alheilan. Í seinni hálfleik byrjaði Paxel með sömu skotsýninguna og var kominn með 30 stig að loknum 3 leikhlutum og við með 12 stiga forystu eftir hann eftir að munurinn hafði farið mest í 18 stig. 2 glæsileg troð litu dagsins ljós í 3. leikhlutanum en það fyrra átti Brenton og sýndi þar svo ekki fari á milli mála að hann er orðinn heill heilsu en þá braust hann fram hjá varnarmanni sínum og tróð með tilþrifum. Hitt troðið átti sjálfur Troði, Óli Ól. Hann stal boltanum glæsilega, geystist upp og tróð af krafti. Óli var frábær í gær og kannski má segja að hann hafi verið hetja okkar í lokin þegar Njarðvíkingar voru komnir óþægilega nálægt en þá skoraði hann flautuskotklukkukörfu milli miðju og 3-stiga línu sem kom muninum upp í 4 stig og 25 sekúndur eftir. Gríðarlega mikilvæg karfa því Njarðvíkingar hefðu annars haft síðustu sókn og einungis þurft 2-stiga körfu til að komast í forystu. Liðin skiptust á að skora í lokin af vítalínunni og eftir að Óli hafi bara sett annað vítaskota sinna niður og 8 sekúndur eftir þá fékk Maggi Gunn lokaséns en 3-stiga skot hans rétt geigaði og 3-stiga sigur okkar því staðreynd.
Það er á engan hallað held ég ef ég kýs Paxel okkar besta mann í gær en Óli Ól kemur skammt þar á eftir. Það var unun að fylgjast með Paxel í gær og sjálfstraustið hreinlega lak af honum!! Það sést best þegar hann stoppar í hraðupphlaupi og dritar frá 3-stiga línunni og skotið steinliggur! Paxel var frábær fyrstu 3 leikhlutana og var með 30 stig eftir það en eitthvað náðu Njarðvíkingar greinilega að herða á vörninni í lokaleikhlutanum því hann setti bara fyrstu 2 stig þess leikhluta. Palli hitti reyndar „ekki nema“ 8/12 3-stiga skotum sínum í gær og þarf nú kannski eitthvað aðeins að kíkja á skotin sín..... Palli tók auk þess 6 fráköst, stal 2 boltum og varði 2 bolta en þetta skilaði sér allt saman í 31 framlagsstigi sem var hæst allra í gær.
Óli Ól var sömuleiðis frábær í gær og í raun okkar hetja í lokin. Fyrir utan að skora 20 stig þá tók hann 5 fráköst, gaf 6 stoðsendingar, stal 1 bolta og varði glæsilega skot en við skulum hafa í huga að pjakkurinn er ekki nema á sínu 19.aldursári!! Óli er eins og við vitum öll, bróðir Lalla sem er landsliðsmaður en hann vantaði í gær sem gerir sigur okkar kannski ennþá glæsilegri en 3.bróðirinn er eins og við vitum líka, Jóhann en hann var góður spilari á sínum tíma en hefur lagt skónum vegna meiðsla en hefur í staðinn snúið sér að þjálfun og er að gera frábæra hluti með kvennaliðið okkar sem er það heitasta um þessar mundir og til alls líklegt varðandi sjálfan Íslandsmeistaratitilinn. Ein stelpa er í systkynahópnum en það er hún Sigga sem er kona Gulla Eyjólfs, þrists með meiru en sjálf er Sigga vel liðtæk í körfuknattleiknum. Er kannski spurning um að reyna semja við föður þeirra sem allir vita að er Ólafur Jóhannsson, varðandi framtíðarútungun grindvísks körfuknattleiksfólks???? :)
Í svona flottum sigri þurfa í raun allir að spila vel og það gerðu allir okkar menn í gær. Flake er svakalega góður leikmaður og virðist hann kominn í sitt besta form en á meðan hans naut við í gær þá var hann mjög drjúgur og skoraði 15 stig og tók 9 fráköst. Hann kann leikinn upp á 10 og hefur mjög næmt auga fyrir stoðsendingum á félaga sína þótt einungis 1 slík hafi skilað sér í gær. Ómar skoraði kannski ekki mikið í gær en tók 10 fráköst og barðist eins og ljón allan tímann. Gulli og Björn Steinar komu sterkir af bekknum og skiluðu sitthvorri 3-stiga körfunni. Þessi sigur var virkilega mikilvægur upp á framhaldið því við erum áfram með í baráttunni um efstu sætin í Iceland Express deildinni en staðan í deildinni er þannig núna að KR er efst með 2 töp, Keflavík og Njarðvík með 3 töp, Snæfell og Stjarnan með 4 töp og við með 5 töp.
Næsti leikur er ekki síður mikilvægur en þá koma svarthvítu forystusauðirnir úr Vesturbænum í heimsókn. Með sigri í þeim leik minnum við rækilega á okkur en með fulla og heila hersveit erum við einfaldlega til alls líklegir. Leikurinn fer fram á okkar heimavelli fimmtudaginn 4.febrúar og eru allir hvattir til að mæta á leikinn en mæting á leikinn í gærkvöldi var góð og voru okkar aðdáendur vel með á nótunum. Nú fer gamanið að kárna og þá þarf góðan stuðning áhorfenda en við sýndum í úrslitakeppninni í fyrra að við getum átt bestu stuðningsmenn landsins! Þessi leikur er líka fín upphitun fyrir þorrablótið sem haldið verður á laugardeginum á eftir, 6.febrúar.
Áfram Grindavík!!! |