| Grindavík 6 - ÍBV 2 |
|
| Höfundur Umsjónarmaður | |
| sunnudagur, 24 janúar 2010 | |
|
Grindavík sigraði ÍBV í æfingaleik á Víkingsvelli í dag með 6 mörkum gegn 2 í meistaraflokki karla. Tryggvi Guðmundsson kom ÍBV yfir þegar hann slapp einn í gegn en Matthías Örn Friðriksson, sem kom frá Þór á Akureyri, jafnaði metin með góðu skallamarki. Sveinbjörn Jónasson kom Grindavík yfir með skoti af stuttu færi eftir að Óli Baldur Bjarnason átti skot í stöng. Staðan í hálfleilk 2-1 Grindavík í vil. Í seinni hálfleik skoraði Grindavík fjögur mörk með skömmu millibili en þrjú þeirra komu eftir hornspyrnur. Sveinbjörn, Jóhann Helgason, Orri Freyr Hjaltalín og Auðun Helgason skoruðu mörk Grindavík en þetta var fyrsta mark Auðuns fyrir félagið, staðan 6-1. ÍBV minnkaði muninn með marki Eyþórs Helga Birgissonar en þar við sat, úrslitin 6-2 Grindavík í vil. Næsta verkefni meistaraflokks karla er afmælismót Reykjaneshallar. Grindavík mættir Þrótti Vogum 29. janúar, Njarðvík 11. febrúar og síðan eru úrslitaleikir 19. febrúar. |
| < Fyrri | Næst > |
|---|
















