UMFG
Heim > Fréttir > Fréttir af fótboltanum
ţriđjudagur, 07 september 2010
 
 
Fréttir af fótboltanum Senda
Höfundur Umsjónarmađur   
föstudagur, 22 janúar 2010
Grindavík mætir ÍBV í æfingaleik í meistaraflokki karla í knattspyrnu á Víkingsvelli kl. 12:00 á sunnudaginn. Þetta verður fyrsti æfingaleikur Grindavíkur á þessu ári en sá fjórði hjá ÍBV. Grindavík lék þrjá æfingaleiki fyrir jól, tapaði öllum og skoraði ekki eitt einasta mark.
 
Þess má geta að Gilles Mbang Ondo framherji Grindavíkur, kemur til landsins 1. febrúar nk. til æfinga með liðinu en engin tilboð hafa borist í kappann. Þá kemur varnajaxlinn Zoran Stamenic til Grindavíkur í næstu viku frá Serbíu til að undirbúa sig fyrir keppnistímabilið með Grindavík.
< Fyrri   Nćst >
Samstarfsađilar


 
   
   
 





Bókaðu ferðina með Iceland Express með því að smella hér fyrir neðan og styrktu körfuknattleiksdeildina um leið