| Sigur hjá stelpunum í kvöld!! |
|
| Höfundur Bensó | |
| miðvikudagur, 20 janúar 2010 | |
|
Stelpurnar sigruðu Njarðvíkukonur sannfærandi í kvöld 101-90, stelpurnar gáfu aðeins eftir á lokakaflanum en þær voru að vinna með 21 stigi þegar 8 mín voru eftir af leiknum... Stelpurnar byrjuðu vel í kvöld, fengu aðeins 6 stig á sig í fyrsta leikhluta en eftir það var eins og þær hafi gleymt vörninni en spiluðu sóknina af miklum myndarbrag í kvöld staðan í hálfleik var 44-33 Seinni hálfleikurinn var svo ágætur nema síðustu 8 min eins og ég skrifaði hér að ofan og 2 stig í hús sem er ótrúlega ánægjulegt. Stelpurnar eru búnar að vinna 8 af síðustu 9 leikjum og núna er bara að halda áfram. Stelpurnar sitja sem stendur í öðru sæti í deildinni en næsta umferð byrjar nýtt fyrirkomulag en þá spila stelpurnar tvær umferðir við KR,Hamar og Keflavík en það eru 4 efstu liðin í deildinni ásamt okkur. Atkvæðamestar í kvöld voru Michele með 39 stig og 13 fráköst, Jovana 18 stig, Petrúnella og Skiba báðar með 12 stig en Skiba reif einnig 7 fráköst niður og gaf 5 stoðsendingar Helga stóð sig svo vel að venju með 9 stig og 9 fráköst. Áfram Grindavík |
| < Fyrri | Næst > |
|---|
















