| Upplýsingar vegna aðkomuliða |
|
| Höfundur Unglingaráð körfuknattleiksdeildar | |
| þriðjudagur, 20 október 2009 | |
Aðstaða og þjónusta í Grindavík.Upplýsingar til aðkomuliðaAkstursleiðirGrindavík er í um það bil 50 km fjarlægð frá Reykjavík, nánar tiltekið um 4 km frá Bláa lóninu. Um tvær akstursleiðir er að ræða, annars vegar Reykjanesbrautina frá Hafnarfirði áleiðis til Reykjanesbæjar og hins vegar Suðurstrandarveginn frá Þorlákshöfn. Sé ekið frá Hafnarfirði er tekin vinstri beygja á mislægum gatnamótum á Vogastapa og þaðan ekið eftir Grindavíkurvegi (14 km) suður til Grindavíkur. Leiðin frá Þorlákshöfn er talsvert styttri en á móti kemur að hluti leiðarinnar er hægur yfirferðar en þó ávallt fær fólksbílum. Með auknum vegabótum verður þessi leið mun fljótfarnari en Reykjanesbrautin fyrir þau lið sem koma af Suður- og Austurlandi.ÍþróttahúsiðÍþróttahúsið Röstin er staðsett á Austurvegi 1, við hliðina á sundlaug bæjarins. Þeir sem aka Grindavíkurveginn keyra inn í bæinn eftir Víkurbrautinni (ca 200 m) og beygja síðan til vinstri hjá söluturninum Aðal-Braut. Þá blasir íþróttahúsið við á vinsti hönd. Þeir sem keyra Suðurstrandarveginn koma beint inn á Austurveginn og aka sem leið liggur framhjá tjaldstæðinu og knattspyrnusvæðinu en þá blasir Röstin við á hægri hönd. Leikmenn ganga inn í íþróttahúsið um aðalinngang. Síminn í íþróttahúsinu er 426-8244. Forstöðumaður er Hermann Guðmundsson (símar: 426-8451 og 660-7304, netfang: ). Kort af bænum er að finna í símaskránni og jafnframt á netinu (www.ja.is).GistingÞegar fjölliðamót eru haldin er aðkomuliðum boðið upp á gistingu gegn vægu gjaldi í Hópsskóla ef aðstæður leyfa. Hópsskóli er staðsettur norðaustan við íþróttasvæðið í um 400 m fjarlægð frá íþróttahúsinu. Skólinn er enn í byggingu þegar þetta er skrifað en ráðgert er að starfsemi muni hefjast þar í janúar 2010. Panta þarf gistinguna í síma 660-7325 eða senda tölvupóst: netfang: mailto:Mögulegt er að fá gistingu í Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut í u.þ.b. 600 m fjarlægð frá íþróttahúsinu en þá þarf að hafa samband við unglingaráð körfuknattleiksdeildar UMFG (Eyjólfur Guðlaugsson: 862-8047, , Agnar Steinarsson: 866-3948, ). Einnig er hægt að gista á gistiheimilinu Borg að Borgarhrauni 2 (300 m frá íþróttahúsinu) en þar er hópum boðin gisting á hagstæðu verði. Símar: 426-8685, 896-8685 og 895-8686. Heimasíða: www.guesthouseborg.com. Netfang: mailto: VeitingastaðirVeitingahúsið Salthúsið, Stamphólsvegi 2 (símar: 426-9700, 699-2665, www.salthusid.is, ).Veitingahúsið Lukku-Láki, Hafnargötu 6 (símar: 426-9999, 699-2665). Veitingahúsið Brim, Hafnargötu 9 (sími: 426-8570). Mamma Mía pizzastaður, Hafnargötu 7a (sími: 426-9966). Pizza Islandia, Hafnargötu 6 (sími: 426-9900). Söluturninn Aðal-Braut, Víkurbraut 31 (sími: 426-7222, 426-7293). Kaffihúsið Bryggjan, Miðgarði 2 (sími: 426-7100, 892-4587). Matvöruverslanir og söluturnarVerslunin Nettó, Víkurbraut 60.Verslunin Bára, Hafnargötu 6. Hérastubbur Bakari, Gerðavöllum 17. Söluturninn Aðal-Braut, Víkurbraut 31. Söluturninn Skeifan, Víkurbraut 60. AfþreyingSundlaug Grindavíkur, Austurvegi 1 (sími: 426-7555).Bláa lónið (sími: 420-8800, www.bluelagoon.is) (6 km frá Grindavíkurbæ). Saltfisksetur Íslands, Hafnargötu 12a (sími: 420-1190, 660-7307, www.saltfisksetur.is). Gjáin í Eldborg, sýning í Hitaveitu Suðurnesja, Svartsengi (3 km norðan við Grindavíkurbæ). Bankar og hraðbankarSparisjóður Keflavíkur, Víkurbraut 62.Landsbankinn, Víkurbraut 56. HeilsugæslaHeilsugæslan í Grindavík, Víkurbraut 62 (sími: 422-0750).Tannlæknir: Guðmundur Pálsson (símar: 426-7321, 864-7210). Sjúkraþjálfari UMFG: Sreten Karimanovic (símar: 698-7244, 770-5075). |
| < Fyrri |
|---|
















