Tilkynning vegna skráningar í fimleika veturinn 2010 – 2011
Höfundur Stjórn fimleikadeildar.
föstudagur, 27 ágúst 2010
Skráning í fimleika veturinn 2010 – 2011 verður þriðjudaginn 31. ágúst og miðvikudaginn 1.september uppi í íþróttahúsi frá kl. 17 – 18.
Einnig má senda skráningu, nú þegar og til 17. september, á netfangið:
Tekið er á móti skráningum fyrir grunnskólabörn og LEIKSKÓLABÖRN fædd 2005, 2006 og 2007. Ath.leikskólabörn falla ekki undir samning UMFG við Grindavíkurbæ og borga foreldrar 4000 á mánuði til fimleikadeildarinnar fyrir þau.
Þær upplýsingar sem verður að senda eru eftirfarandi: Fullt nafn iðkanda, kennitala, heimilisfang og símanúmer + fullt nafn forráðamanns og gsm símanúmer (mikilvægt öryggisatriði ef eitthvað kemur uppá á æfingu). Einnig leggjum við mikla áherslu á að fá rétt netfang sent með þar sem flestar upplýsingar og tilkynningar verða sendar til foreldra í tölvupósti.
Æfingar byrja samkv. nýrri stundatöflu þann 6. sept – stundatafla birt í lok næstu viku (3. eða 4. sept.) á heimasíðu umfg: www.umfg.is undir fimleikadeild.
Frá 6. – 17. sept. gefst krökkunum tækifæri til að prufa og ákveða hvort þeir vilji æfa en eftir 17. sept. eru hóparnir lokaðir til áramóta. Mjög mikilvægt þó að við fáum skráningar allra þeirra sem eru ákveðnir í síðasta lagi 1. sept því þá verður farið í hópaskiptingar.
Vorhátíð leikskólabarna í fimleikum
Höfundur Umsjónarmaður
miðvikudagur, 19 maí 2010
Allmörg börn á leikskólaaldri hafa stundað fimleika hjá fimleikadeild UMFG í ár. Hafa þau staðið sig frábærlega vel, hegðun þeirra og ástundun til fyrirmyndar.
Síðasta æfingin á tímabilinu verður næstkomandi fimmtudag frá klukkan 16:00-17:30 þar sem slegið verður upp í vorhátíð. Þjálfarar, meðlimir í stjórn og elstu iðkendurnir munu aðstoða í leikjum með börnunum, sungið verður og pylsur grillaðar.
Fimleikamót um helgina
Höfundur Fimleikadeildin
fimmtudagur, 18 mars 2010
Næstkomandi sunnudag verður haldið innanfélagsmót í fimleikum í íþróttahúsinu kl. 10:00. Er þetta fyrsta mótið sem fimleikadeildin heldur og er mikil spenna hjá öllum iðkendum vegna þess. Grunnskólabörnin keppa á nokkrum áhöldum og í átta hópum. Veitt verða verðlaun fyrir hvert áhald i hverjum hóp. Áætlað er að mótslok verði í kringum 16:00 en þá mun Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri krýna innanfélagsmeistara hjá stúlkum eldri og yngri og drengjum.
Leikskólahóparnir fara í gengum þrautbraut og fá viðurkenningu fyrir.
Hvetjum við alla til að koma og fylgjast með skemmtilegu móti.
Dagskrá: Mót hefst kl: 10.00: Keppnistímar hópanna eru eftirfarandi en allir mega horfa á aðra hópa þegar þeir eru ekki að keppa. Inní þeim tíma sem uppgefinn er fyrir hvern hóp er gert ráð fyrir upphitunartíma og verðlaunaafhendingu. Kl. 10.00 - 11.00 Leikskólahópar (L 1 og L 2) Kl. 10 - 12 Hópar 1, 2 og 3 Kl. 12 - 14 Hópar 9 og 10 (drengir) Kl. 13.30 - 16.30 Hópar 4, 5, 6, 7 og 8 .Keppendur koma með búning og nesti.
Keppt verður til verðlauna hjá grunnskólakrökkum en leikskólakrakkar fá viðurkenningu fyrir þátttöku: Verðlaun veitt fyrir 1. - 3. sæti á hverju áhaldi en auk þess er tekinn saman samanlagður stigafjöldi keppenda á öllum áhöldum og veitt sérstök verðlaun til stigahæstu stúlku í eldri og yngri hóp og stigahæsta drengsins.
Innanfélagsmót í fimleikum
Höfundur Umsjónarmaður
mánudagur, 15 mars 2010
Þann 21. mars verður haldið innanfélagsmót hjá fimleikadeildinni og hefst mótið klukkan 10:00 þegar leikskólahóparnir stíga á svið.
Kl. 10.00 – 11.00 Leikskólahópar (L 1 og L 2) Kl. 10 – 12 Hópar 1, 2 og 3 Kl. 12 – 14 Hópar 9 og 10 (drengir) Kl. 13.30 – 16.30 Hópar 4, 5, 6, 7 og 8