Sigurpáll Jóhannsson | lau. 19. nóv. 2011
Forvarnarnefnd

Í tilefni 75 ára afmælis UMFG í fyrra samþykkti stjórn UMFG að stofna forvarnarsjóð UMFG. Markmið sjóðsins er að styðja og styrkja forvarnarstarf deilda UMFG og að aðstoða við framkvæmd forvarnarstarfs. Forvarnarnefnd UMFG tók til starfa í október 2010.
Forvarnarnefndina skipa:
Stefanía Jónsdóttir
Ásdís Sigurðardóttir
Ægir Viktorsson
Sveinn Árnason
Gígja Eyjólfsdóttir
Ef bæjarbúar hafa einhverjar ábendingar til forvarnarnefndarinnar, sendið þær endilega á netfangið forvarnarnefnd@umfg.is. Ábendingarnar geta verið nafnlausar. Fullum trúnaði er heitið.