Sigurpáll Jóhannsson | fös. 31. des. 2010

Viđtal viđ Jósef Jósefsson

Hvernig leggst það í þig að vera valinn Íþróttamaður Grindavíkur?
Þetta kom á óvart, ég átti ekki von á þessu og var ekkert sérstaklega búinn að búa mig undir það. En þetta er auðvitað mikill heiður.

Ég hef ekki komið áður á svona viðburð þannig gaman að sjá hversu hversu margir mættu. Sýnir bara andan í bænum og hvað íþróttalífið skiptir fólki miklu máli.

Hvað stóð upp úr á árinu?
Fyrir mér persónulega voru það landsleikirnir með U-21 liðinu. Að byrja inn á gegn Þjóðverjum úti og koma inn á gegn Norður-Írlandi og skora sigurmarkið.
Hinsvegar voru það tvímælalaust vonbrigði ársins að vera ekki með í tveimur síðustu leikjunum.
Annars var þetta þokkalegt ár, gekk ekkert sérstaklega vel í efstu deild en ég nokkuð sáttur með mig persónulega.

Þú sýndir mestan stöðuleikan í ár og spilaðir alla leikina, einhver ástæða fyrir því?
Já ég held að það sé einn af mínum kostum að ég meiðist lítið og spila því oftast. En til þess þarf maður að hugsa vel um sig. Þó að maður sé ungur þá verður
maður að passa vel upp á sig til að vera alltaf klár, sérstaklega ef maður ætlar að reyna ná eitthvað lengra.

Einhver markmið fyrir næsta ár?
Já en ég held þeim fyrir sjálfan mig, ekkert að blaðra þeim út í loftið.
En það er klárlega markmið að gera betur með Grindavík, við verðum að stefna að því að gera betur. Annars á maður bara að hætta þessu því maður nennir ekkert
að hanga þarna í botninum.

Þú stefnir ótrauður á Danmörku með U-21 liðinu?
Já þar er markmiðið núna, maður þarf að leggja sig 100% í það. Það er þvílík samkeppni þarna þar sem 90% af liðinu í atvinnumenn nema kannski í minni stöðu þar sem við erum þrír að berjast um sætið.
Maður verður bara að nota undirbúningstímabil til að sýna sig og komast í liðið.

Í tilnefningu á Jósef til Íþróttamanns Grindavíkur fylgdi eftirfarandi lýsing:
Jósef Kr. Jósefsson - Í 2. sæti í kjöri knattspyrnumanns ársins í Grindavík

Jósef er klárlega einn af lykilmönnum meistaraflokks en hann lék alla 22 leiki liðsins í
sumar. Hann átti mjög gott sumar og var sá leikmaður sem sýndi hvað mestan
stöðugleika yfir allt sumarið í liðinu. Jósef er mikill keppnismaður og leggur sig ávallt
100 prósent fram fyrir Grindavík í hverjum einasta leik sem hann spilar. Hann hefur
sýnt mikla tryggð við félagið þrátt fyrir að hafa verið eftirsóttur af sterkustu félögum
landsins og skrifaði undir nýjan samning fyrir ári enda með Grindavíkurhjartað á
réttum stað. Þrátt fyrir að vera 21 árs hefur Jósef leikið hvorki fleiri né færri en 90
meistaraflokksleiki og skorað 6 mörk. Jósef var hluti af U21 árs landsliði Íslands sem
tryggði sér sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins næsta sumar. Hann lék einn leik með
liðinu í ár en hann var í byrjunarliðinu gegn jafnteflisleik gegn Þýskalandi ytra í mars.
Alls hefur Jósef leikið 5 leiki með U21 og skorað 1 mark. Jósef er góð fyrirmynd innan
vallar sem utan.