Viđtal viđ Helgu Hallgrímsdóttir
Til hamingju, kom þetta kjör þér á óvart?
Takk. Já þetta kom mér á óvart, það voru einhverjir búnir að nefna ég ætti von á þessu en ég þetta kom nú samt á óvart.
Ég átti alls ekki von á þessu,
Hvernig finnst þér árið hafa verið hjá þér í körfunni?
Þetta er búið að vera ágætt hjá okkur í liðinu. Fyrir mér persónulega stendur upp úr að hafa verið valin í úrvalslið Iceland Express deildarinnar í seinni umferðinni.
Gaman að fá viðurkenningu frá öðrum utan Grindavíkur.
Margar úr byrjunarliðinu frá því í fyrra fór á brott fyrir þetta tímabil, var það aldrei inn í myndinni hjá þér?
Nei. Ég hafði mestar áhyggjur að það yrði ekki lið en um leið og það var ákveðið að taka þátt þá var það aldrei spurning að ég mundi spila fyrir Grindavík.
Tímabilið í ár hefur verið erfitt, hvernig leggst það í þig?
Við erum vissulega búnar að tapa mörgum leikjum en við erum að tapa fyrir bestu liðunum með litlum mun þannig að ég hef trú á þessu, þetta er að koma.
Hvernig leggst þá nýtt íþróttaár í þig?
Við ætlum að halda okkur uppi í efstu deild. Sjálf stefni ég að því að komast aftur í úrvalslið Iceland Express deildarinnar.
Í tilnefningu á Helgu til Íþróttakonu Grindavíkur fylgdi eftirfarandi lýsing:
Þrátt fyrir ungan aldur er Helga einn af burðarásum liðsins.
Byrjaði með meistaraflokknum 2004 og síðan hefur leiðin eingöngu legið uppá við. Hún var valin í
úrvalslið í Iceland Expressdeildarinn fyrir seinni hluta mótsins.
Á lokahófi körfuknattleiksdeildarinn í vor var hún kosin besti leikmaðurinn. Það er ekki að
ástæðulausu sem að Helga er tilnefnd.
Allar aukaæfingarnar sem hún hefur verið að taka og mætingin í Orkubúið er alveg einstök. Hún nýtir kortið sitt vel. Aukaæfingin
skapar meistarann,það er á hreinu.
Eftir allar breytingarnar sem urðu á liðinu okkar í haust, þá hefur mætt mun meira á Helgu og meiri ábyrgð sett á hana ,sem gamla
reynsluboltann. Getum við sagt mamman í hópnum, aðeins 23 ára gömul.
Helga ber þetta allt saman með prýði. Hún sagðist spila í Grindavíkurbúning hvort heldur sem
þær væru í úrvalsdeild eða þeirri fyrstu, þegar stjórnin var að skoða hvað hægt væri
að geta síðastliðið haust.
Með sama áhuganum og dugnaðinum á Helga bara eftir að verða betri leikmaður og við vitum það að hún verður með okkur í mörg ár í viðbót.